Hraðlaið stjarna

Er þitt fyrirtæki næsta sprengistjarna?

Startup SuperNova er samstarfsverkefni Nova og KLAK - Icelandic Startups með stuðningi frá Huawei þar sem leitast er við að byggja upp viðskiptalausnir ætlaðar alþjóðamarkaði. Hraðallinn er farinn af stað og lýkur með Fjárfestakynningu 22. september.

Stökkpallur fyrir sprotafyrirtæki

Allt að tíu teymi eru valin inn í hraðalinn ár hvert í gegnum vandað umsóknarferli og býðst teymunum aðgangur að fullbúinni vinnuaðstöðu meðan á hraðlinum stendur. Í ár hefst Startup SuperNova á tveggja daga Masterclass og topp tíu teymum sem komast í gegn um umsóknarferlið býðst svo að taka þátt i sex vikna viðskiptahraðli sem hefst 9. ágúst. Startup SuperNova lýkur svo með glæsilegum fjárfestadegi 22. september.

Masterclass 22. – 23. Júní

Fasi 1

Magnús Scheving með kynningu
Startup SuperNova hefst á öflugum Masterclass þar sem þátttakendur fá þjálfun og leiðsögn við að útbúa 18. mánaða aðgerðaráætlun fyrir verkefnin sín. Masterclass Startup SuperNova verður opin öllum til skráningar. Gerð er krafa um þátttöku í Masterclass fyrir þau sem vilja komast áfram og sækja um í sjálfan hraðalinn. Beina útsendingu frá Masterclass má finna á hlekknum hér að neðan!
Fylgstu með Masterclass 2023 hér!

Umsóknarfrestur og skil 9. júlí

Fasi 2

Fasi 2
Þátttakendur þurfa að vera tilbúnir með 18. mánaða aðgerðaráætlun sem skila þarf inn ásamt umsókn í hraðalinn.

Topp 10 komast áfram í 6 vikna viðskiptahraðal

Fasi 3

Fasi 3
Allt að tíu fyrirtæki eiga þess kost að fá sæti í hraðlinum sem stendur yfir í sex vikur. Markmið hraðalsins er að hraða framgangi sprotafyrirtækisins og að það sé fjárfestingarhæft þegar að hraðli lýkur.

Fjárfestadagur 22. September

Fasi 4

Fasi 4
Startup SuperNova lýkur formlega með fjárfestadegi þar sem teymin kynna verkefnin sín fyrir fullum sal af gestum. Þetta er glæsilegur viðburður sem gaman er að taka þátt í og fylgjast með uppskeru þeirra teyma sem taka þátt.